Líkami Guðmundar Felix Grétarssonar er farinn að hafna handleggjunum sem á hann voru græddir í síðasta mánuði. „Það var vitað að þetta myndi gerast. Það eru einhverjir rauðir blettir sem fóru að birtast en í öllum handaígræðslum, sem hafa verið gerðar hingað til, er þetta eitthvað sem hefur alltaf gerst á fyrstu níutíu dögunum,“ útskýrði Guðmundur á Facebook síðu sinni.
„Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af. Þeir bjuggust við þessu og vita hvað á að gera,“ segir Guðmundur sem virtist lítið kippa sér upp yfir málinu. Hann sé nú á háum skammti af lyfjum við þessu. „Vonandi verður allt orðið í lagi aftur á innan við nokkrum dögum.“
Jákvæður og bjartsýnn
Guðmundur telur það vera jákvætt að líkaminn hafi hafnað handleggjunum á meðan hann liggur enn á spítala þannig læknarnir geti tekist á við það.
Til stendur að flytja Guðmund á annan spítala þann 22. Febrúar þar sem hann mun fara í gegnum endurhæfingu. „Þar verð ég í óákveðinn tíma. Ég verð heilt yfir í endurhæfingu í þrjú ár en verð líklega inniliggjandi þar í þrjá mánuði.“
Óhætt er að fullyrða að Guðmundur sé bjartsýnn og jákvæður yfir aðstæðum. Honum gangi vel að komast á fætur og finni fyrir minni mæðu. „Ég er mjög glaður með árangurinn.“