Lífleg viðskipti með hlutabréf: úrvalsvísitalan hækkað um 33% frá áramótum

Úrvalsvísitalan heldur áfram að hækka og viðskipti með hlutabréf hafa verið mjög lífleg í kauphöllinni Nasdaq Iceland undanfarna mánuði. Í lok síðasta mánudags hafði Úrvalsvísitalan hækkað um 33,5% frá áramótum  og um 25,1% á síðustu tólf mánuðum. Fyrirtæki eins og Marel, Síminn, Reitir og Origo hafa hækkað verulega í verði að undanförnu. Hækkun Marels er ævintýraleg en bréf í félaginu hafa hækkað um yfir 50% undanfarna mánuði og nálgast félagið óðfluga 400 milljarða verðmætamúrinn.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Sjá nánar um málið í nýjasta þætti Viðskipta með Jóni G.: