Þættirnir Lífið er lag hafa notið geysimikilla vinsælda á Hringbraut en þeir fjalla um stöðu, hagsmuni
og framtíðarsýn eldri borgara á Íslandi. 12. og síðasti þáttur á þessu hausti er á dagskrá Hringbrautar
kl. 20.30 en þá mun þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson ræða við Hannes Arnar Ragnarsson sem
varð sjötugur á árinu og ræðir um starfslok sín og það sem við tók. Því næst verður
rætt við Elías Þ. Þorvarðarson innkaupastjóra Samkaupa sem rekur Nettó verslanirnar en hann fræðir
áhorfendur um meðferð á ferskvöru í verslunum Nettó. Undir lok þáttarins er enginn annar en Friðrik Ólafsson
gestur kvöldsins í „Betra horninu“ en hann mun m.a. rekja upphaf ferils síns sem stórmeistara á 6. áratug síðustu aldar
og segja frá frægum einvígum sem hann háði á árum áður þ.m.t. við Bobby Fischer. Þá ræðir Friðrik
stuttlega um nýútkomna bók sem hann skrifaði ásamt Helga Ólafssyni stórmeistara og er eins konar
skákævisaga. Friðrik fagnaði 85 ára afmæli fyrr á þessu ári og er með þekktustu núlifandi afreksmönnum
skáklistarinnar. Myndatökur voru í höndum Friðþjófs Helgasonar.