Lífið er lag“ Nýtt Hlaðvarp hefur göngu sína

Ferðaskrifstofa eldri borgara ásamt Hótelbókunum.is stendur að nýju Hlaðvarpi sem hefur göngu sína þann 16. apríl n.k. og heitir „Lífð er lag“ sem er eins konar framhald samnefndra sjónvarpsþátta sem nutu vinsælda á Hringbraut á árunum 2018-2021. Þáttastjórnandi er sem fyrr Sigurður K. Kolbeinsson en hann fær til sín ýmsa þekkta „eldri“ Íslendinga í skemmtileg viðtöl þar sem rifjaðar eru upp sögur og frásagnir aftur í tímann sem margur kann að hafa gaman af heyra. Meðal fyrstu viðmælenda eru Baldvin Jónsson, Margrét Dórothea Sigfúsdóttir, Þorsteinn Eggertsson og Sigurður L. Hall. Hægt verður að nálgst Hlaðvarpið á heimasíðu okkar með því að smella hér eða í gegnum streymisveituna Spotify þar sem leita þarf að Lífið er lag. Það er von okkar að sem flestir kynni sér Hlaðvarpið og segi öðrum frá en efnið er öllum aðgengilegt.