Þátturinn Lífið er lag er á dagskrá Hringbrautar kl. 21.00 í kvöld en þetta er 10. þáttur á þessu vori en þættirnir eru sýndir vikulega á Hringbraut, alla þriðjudaga. Í þætti kvöldsins verður fyrst rætt við Kolbrúnu Baldursdóttur borgarfulltúra um málefni eldri borgara er snúa að sveigjanlegri vinnutíma og þá lengri starfsævi með ávinningi fyrir alla sem þess óska. Þá verður litið inn hjá fyrirtækinu Mulier Fortis og rætt við eigendur fyrirtækisins um náttúrulyf sem vinnur á augnþurrki annars vegar og leggangaþurrki hjá konum hins vegar. Einnig verður komið inná mikilvægi notkunar steinefnasalt sem viðhalda réttu rakasjafnvægi líkamans. Í síðari hluta þáttarins ræðir þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson við stórsöngvarann Björgvin Halldórsson sem fagnaði 70 ára afmæli s.l. föstudag.
Sigurður hitti Björgvin á sviði Borgarleikhússins rétt áður en afmælistónleikar hans voru haldnir og þeim streymt til landsmanna nær og fjær. Björgvin fer stuttlega í gegnum ferilinn og ræðir um lífið og tilveruna við þessi miklu tímamót. Einnig verður stutt myndskeið sýnt frá tónleikunum s.l. föstudag.
Upptökur og myndvinnsla var að vanda í höndum Friðþjófs Helgasonar