Þátturinn Lífið er lag er á dagskrá Hringbrautar kl. 21.00 í kvöld en þetta er 7. Þáttur af þeim 12 sem Hringbraut sýnir á þessu vormisseri. Rætt er við Gísla Jafetsson markaðsstjóra Ferðaskrifstofu eldri borgara um fyrstu ferðir sem fyrirhugaðar eru út fyrir landssteinana á þessu ári auk fleiri ferða síðar á árinu. Pálmi V. Jónsson yfirlæknir öldrunardeildar LSH ræðir um mikilvægi málsvara þeirra sem þurfa á heimahjúkrun að halda. Þá er rætt við Guðmund G. Hauksson framkvæmdastjóra Framfarar um starfið um þessar mundir, nú þegar Mottumars er í hámæli.
Framför er félag karla sem veikst hafa af blöðruhálskrabbameini og starfar innan Krabbameinsfélagsins. Undir lok þáttarins rifjar Hans Kristján Árnason, annar stofnanda Stöðvar 2, hvernig hugmynd hans og Jóns Óttars Ragnarssonar varð að veruleika árið 1986. Eins og marga rekur minni til misstu stofnendur Stöðvar 2 völdin þegar Verzlunarbankinn seldi hluthafahóp meirihluta í félaginu og þeir hurfu frá sínum störfum. Hann rifjar m.a. upp þegar þáverandi sjónvarpsstjóri sendi þeim minnisstæðan reikning vegna áskriftargjalda aftur í tímann en allir þáverandi starfsmenn Stöðvar 2 nutu frírrar áskriftar meðan þeir störfuðu þar. Þátturinn er að vanda í umsjón Sigurðar K. Kolbeinssonar og kvikmyndataka í höndum Friðþjófs