Lífið er lag í kvöld kl. 21 Kristján L. Möller fjallar um samgöngumál fyrr og síðar

Þátturinn Lífið er lag verður á dagskrá Hringbrautar kl. 21.00 í kvöld – athugið breyttan sýningartíma vegna Fréttavaktarinnar sem er á dagskrá kl. 18.30.

Í þættinum verður m.a. rætt við Kristján L. Möller fyrrv. alþingismann og samgönguráðherra um þróun samgangna á Íslandi og þá einkum á sviði jarðgangagerðar. Hann var ungur maður á Siglufirði þegar Strákagöng opnuðu 1968 og samgönguráðherra meðan Héðanfjarðargöng voru

byggð rúmum 40 árum síðar. Þá útskýrir Kristján hugmyndir að nýjum jarðgöngum milli Siglufjarðar og Fljóta sem gætu um leið verið varaleið milli Akureyrar og Reykjavíkur komi til lokunar á Öxnadalsheiði þegar veður hamlar en það hefur oft gerst.

Auk Kristjáns verður rætt við Dr. Ólöfu Guðný Geirsdóttur dósent við HÍ um mikilvægi hollustu og næringar eldri borgara á Covid-tímanum og spjallað við Dr. Björn S. Gunnarsson matvælafræðing hjá MS um vöru sem slegið hefur í gegn hjá eldri borgurum, Næringu+. Einnig verður rætt við Halldór S. Guðmundsson forstöðumann öldrunamála hjá Akureyrarbæ um merkilega tilraun sem verið er að gera á mismuni og reynslu af dagþjálfun annars vegar eða og dvöl á hjúkrunarheimili hins vegar.

Þættirnir Lífið er lag fjalla um stöðu, hagsmuni og framtíðarsýn eldri borgara og verða á dagskrá Hringbrautar alla þriðjudag kl. 21.00 framvegis fram í maí n.k.

Kvikmyndataka er í höndum Friðþjófs Helgasonar en þáttastjórnandi er Sigurður K. Kolbeinsson.