Líf þarf að jafna sig eftir að hafa hlustað á Ragn­hildi Öldu

Líf Magneu­dóttir borgar­full­trúi Vinstri grænna er í á­falli eftir að hafa hlustað á Ragn­hildi Öldu, fram­bjóðanda Sjálf­stæðis­flokksins, á Út­varpi sögu. Líf deilir sögunni á Twitter.

„Var rétt í þessu að klára að hlusta á ungan fram­bjóðanda boða sturlaða aftur­för í þróun Reykja­víkur,“ skrifar Líf.

„Og hunsa öll þau brýnu verk­efni fram­undan m.a. í bar­áttunni við lofts­lags­vána. Þarf smá að jafna mig…“

Í þræðinum segist Líf hafa verið að hlusta á Ragn­hildi Öldu Maríu Vil­hjálms­dóttur á Út­varpi sögu. Ragn­hildur sækist eftir 1. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokksins og var gestur Pétur Gunn­laugs­sonar.

Sagðist hún meðal annars ekki vera fylgjandi borgar­línunni, heldur frekar létt­línu­kerfi, þar sem borgar­línan sé of dýr. Hún segir þetta eitt af þeim at­riðum þar sem borgar­yfir­völd eru að reyna að stjórna fólki og því hvernig það hagar sínu lífi, þar með talið hvaða sam­göngu­máta það kýs.

„Þarna eru borgar­yfir­völd og stjórn­mála­menn í ráð­húsinu að reyna að stýra því og taka á­kvörðun fyrir fólk að því for­spurðu sem að býr þarna og er með fyrir­tæki sín þarna, sitt lifi­brauð, hvernig það ferðast um í borgar­landinu og hvernig það hagar sínu lífi, þetta er alveg þvert á mín grunn­gildi, það er bara peninga­sóun að ráð­húsið sé að setja tíma og orku í þetta“, segir Ragn­hildur, að því er fram kemur á vef Út­varps Sögu.