Líf Snorra breyttist í fangaklefa á Akureyri: „Ætlar þú að vera glæpamaður?“

Snorri Ásmundsson listamaður segir að líf hans hafi breyst þegar hann lenti í fangaklefa á Akureyri. Snorri hefur verið þekktur í gegnum tíðina fyrir að fara eigin leiðir. Hann verður gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í þættinum Okkar á milli á RÚV í kvöld.

Fjallað er um efni þáttarins á vef RÚV.

Snorri segir meðal annars frá því að ákveðið augnablik hafi breytt lífi hans og hann hafi tekið sig saman í andlitinu, orðið edrú og tekið listina alvarlega.

Hann byrjaði í námi í Myndlistarskólanum á Akureyri fyrir margt löngu en flosnaði upp úr því. Hann hafði gaman af því að djamma og drekka áfengi og gerði hann mikið af því. Það var ekki fyrr en hann lenti í fangaklefa á Akureyri að líf hans tók alvöru breytingum til hins betra.

„Inni í fangaklefanum er eins og það birtist engill. Það er einhver vera þarna inni með mér sem spyr mig: Snorri, ætlar þú að vera glæpamaður eða ætlarðu að vera listamaður?“

Ekki löngu síðar hélt hann sína fyrstu myndlistarsýningu og hefur hann getið sér gott orð á þeim vettvangi síðan. Viðtalið er á dagskrá RÚV í kvöld klukkan 20:05.