Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, er þegar farin að horfa til næstu stóru verkefna ríkisins og höfuðborgarsvæðisins nú þegar hyllir undir það að framkvæmdir við Borgarlínu fari af stað.
„Þegar við stöndum frammi fyrir vandamálum sem flækja líf okkar reynum við auðvitað fyrst og fremst að leysa þau. Við sem höfum eytt dýrmætum tíma norpandi á stoppistöðvum, föst í umferðinni og á þeytingi á háannatímum, vitum að við þetta ástand verður ekki unað til framtíðar. Umferðarhnútinn verður að leysa,“ segir Líf í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag og bætir við að með Borgarlína komist betra skipulag á þessi mál. Hún spyr svo: „En hvert ætti næsta stóra verkefni ríkisins og höfuðborgarinnar að vera?“
Líf telur að næsta stóra samvinnuverkefnið ætti að vera róttækar breytingar á fyrirkomulagi samgöngumála á Íslandi öllu.
„Fyrst af öllu þurfum við því að stokka upp núverandi fyrirkomulag og stofna Samgöngustofu höfuðborgarsvæðisins, sem væri í umsjón sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og Samgöngustofu Íslands sem væri sameinuð Vegagerð og Samgöngustofa. Þótt báðum einingum væri ætlað að þjónusta alla ferðamáta yrðu hlutverk þeirra og áherslur ólíkar.“
Líf segir að hlutverk stofnunarinnar væri til dæmis það að fækka eknum kílómetrum, draga úr umferð, stórauka hlutdeild virkra ferðamáta og byggja upp samkeppnishæft samgöngukerfi.
„Það er nefnilega komið að tímamótum í þróun samgangna á Íslandi og allar stórhuga umbætur skila okkur ómetanlegum lífs- og umhverfisgæðum, betri heilsu og heilnæmu umhverfi. Það er staðreynd að með þéttingu byggðar, skilvirku samgöngukerfi og þjónustu í göngufæri lækka útgjöld heimila og sveitarfélaga og það er hagsmunamál allra landsmanna.“