Líf birtir myndband: Reykjavík undir stjórn Vigdísar Hauks – „Hrollvekjandi framtíðarsýn?“

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, birti nokkuð athyglisvert myndband á Twitter-síðu sinni í dag.

„Á vafri um lýðnetið varð þetta vidjó á vegi mínum,“ segir Líf og bætir við: „Hrollvekjandi framtíðarsýn eða eina vitið? Blessun eða böl? Þegar stórt er spurt.“

Eins og sést er um að ræða brot úr teiknimynd þar sem hamfarir ganga yfir og dramatísk tónlist er leikin undir. Búið er að texta myndbandið sem hefst á þessum orðum: „Vigdís Hauksdóttir kjörin borgarstjóri.“

Í myndbandinu sést svo þegar fornar steinstyttur rísa úr sæ og eiga þær að tákna íhaldssama borgarfulltrúa sem vilja dreifða byggð. Saman mynda Vigdís og steinstytturnar borgarstjórnarmeirihluta og er fyrsta verk hans að reisa Sundabraut, fleiri mislæg gatnamót og tvöfalda stærð flugvallarins í Vatnsmýri.

Myndbandið má sjá hér að neðan en uppruni þess er ókunnur: