Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur verið nokkuð áberandi í baráttunni fyrir vistvænni umferð, fleiri hjólreiðastígum og minna vægi einkabílsins.
Líf birti athyglisverða mynd á Twitter-síðu sinni á dögunum. Um er að ræða teikningu af íbúð þar sem vægi bílskúrsins er nokkuð mikið í samhengi við önnur rými íbúðarinnar.
Af færslunni að dæma virðist Líf vilja meina að vægi einkabílsins sé enn allt of mikið í Reykjavík. Veltir hún fyrir sér hvort nokkur myndi kaupa sér íbúð þar sem vægi bílsins er svona mikið.
Í færslu sinni segir Líf:
„Myndir þú kaupa þessa íbúð? Engu að síður er þetta staðan í borgarlandinu. Bílastæðin í borgarlandinu eru um 170 þúsund fyrir 90 þúsund bíla. Endurheimtum borgarlandið fyrir virka ferðamáta og lifandi veröld.“
Skiptar skoðanir eru um það hvort fólki finnst vægi bílskúrsins á umræddri teikningu of mikið. Einn Twitter-notandi tekur undir að þetta sé galið á meðan aðrir eru á öðru máli.
Einn segir að þetta sé vond myndlíking þar sem honum finnist fátt skemmtilegra en að dunda sér í bílskúrnum. Annar tekur undir og segir: „Nákvæmlega það sem ég hugsaði. Riiisastór skúr sem rúmar öll áhugamálin og ég myndi jafnvel samt geta komið bílnum fyrir í honum af og til.“
Myndir þú kaupa þessa íbúð? Engu að síður er þetta staðan í borgarlandinu. Bílastæðin í borgarlandinu eru um 170 þúsun fyrir 90 þúsund bíla. Endurheimtum borgarlandið fyrir virka ferðamáta og lifandi veröld. #lifandiborg pic.twitter.com/qRdlZ4GvED
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) May 28, 2021