Rannsókn á tildrögum harmleiksins í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi síðastliðinn laugardag stendur enn yfir hjá lögreglunni á Vestfjörðum og miðar vel. Ekki er þó talið tímabært að gefa út frekari fréttir af rannsókninni.
Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglunni á Vestfjörðum.
Eins og greint hefur verið frá lést tvennt í slysinu; Kamila Majewska lést á laugardagskvöld á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og í gær lést sonur hennar, Mikolaj Majewski, sem var á öðru aldursári. „Líðan eiginmanns Kamilu og föður Mikolaj er eftir atvikum góð,“ segir í skeyti lögreglu.
„Lögreglan sendir eftirlifandi eiginmanni og föður sýnar innilegustu samúðarkveðjur. Þá vill lögreglan ítreka þakkir til viðbragðsaðila sem komu á vettvang og ekki síður þeirra fjögurra vegfarenda sem fyrstir komu að og veittu fyrstu hjálp. Allir þessir aðilar sýndu mikið hugrekki og unnu vel á vettvangi.“