Leynd yfir því hver keypti hlut bankans fyrir 3,3 milljarða

Leynd virðist ríkja yfir því hvaða fjár­festar keyptu rúm­lega 12 prósenta hlut Lands­bankans í Stoðum í desember síðast­liðnum fyrir 3,3 milljarða króna. Kjarninn fjallar um málið á vef sínum í dag og segir að hvorki Lands­bankinn né Stoðir telji sig geta veitt upp­lýsingar um hvaða fjár­festar keyptu hlut bankans.

Svo­hljóðandi til­kynning birtist á heima­síðu Lands­bankans þann 10. desember síðast­liðinn:

„Lands­bankinn hefur selt eignar­hlut sinn í Stoðum hf. í opnu sölu­ferli, en frestur til að skila inn til­boðum í sölu­ferlinu var til kl. 17.00 þriðju­daginn 8. desember sl. Lands­bankinn aug­lýsti opið sölu­ferli á allt að 12,1% eignar­hlut sínum í fjár­festinga­fé­laginu Stoðum hf. þann 23. nóvember sl.“

Í um­fjöllun Kjarnans er þess getið að þar sem Stoðir eru ó­skráð fé­lag er hlut­haf­alisti ekki að­gengi­legur á vef fé­lagsins og þá hefur gögnum um breytingu á eig­enda­hópi Stoða ekki verið skilað til fyrir­tækja­skrár. Kjarninn óskaði eftir upp­lýsingum frá Lands­bankanum, Stoðum og Fossum mörkuðum, sem lögðu fram til­boðið fyrir hönd hinna ó­nafn­greindu fjár­festa, en kom alls staðar að lokuðum dyrum.

Í lok júní síðast­liðnum námu heildar­eignir Stoða 25 milljörðum króna og var eigið fé einnig um 25 milljarðar króna hjá fé­laginu sem er ó­skuld­sett. Stoðir, sem hétu áður FL Group, eiga tæp­lega 5 prósenta hlut í Arion banka og tæp­lega 10 prósenta hlut í trygginga­fé­laginu TM. Þá á fé­lagið rúm­lega 8,2 prósenta hlut í Kviku banka og tæp­lega 15 prósenta hlut í Símanum.

Ítar­leg um­fjöllun Kjarnans um málið.