Létust í brúð­kaups­ferðinni

Harm­leikur átti sér stað á dögunum þegar ný­gift banda­rísk hjón, Mohammad Malik og Noor Shah, létust af slys­förum á Turks- og Ca­icos­eyjum í Karíba­hafinu.

Malik, 35 ára, og Shah, 29 ára, voru bú­sett í New York og gengu þau í hjóna­band í lok októ­ber­mánaðar. Fjórum dögum síðar voru þau stödd í Karíba­hafinu til að fagna þessum tíma­mótum en þá dundu ó­sköpin yfir.

Hjónin voru að kafa í sjónum skammt frá hótelinu sem þau dvöldu á, en mikið út­sog var á þessum slóðum um­ræddan dag. Þau lentu fljót­lega í vand­ræðum en nær­stöddum tókst að koma þeim í land nokkru síðar. Endur­lífgunar­til­raunir báru hins vegar ekki árangur og voru hjónin úr­skurðuð látin.

News­day greinir frá því að Malik hafi verið lög­fræði­menntaður en Shah var í fram­halds­námi í læknis­fræði. Faðir Maliks, Maq­bool, segir að engin við­vörunar­skilti hafi verið við ströndina þegar harm­leikurinn átti sér stað.