Lét Sólveigu Önnu heyra það: „Af hverju getum við ekki beðið um meira?“

„Við vinnum fyrir þau og við erum í verkfalli. Þannig þau þurfa að samþykkja eitthvað, ekki sjötíu þúsund. Í mínum vasa verða það þrjátíu þúsund af því ég borga skatta,“ sagði kona, Georgina, á baráttu- og upplýsingafundi Eflingar í Hörpu í hádeginu.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var mætt á fundinn og vakti það athygli þegar félagskona í Eflingu, umrædd Georgina, sem starfar á Bejayja Iceland hótel, hóf rifrildi við Sólveigu Önnu. Vildi hún meina að Efling ætti að krefjast enn meiri hækkunar en félagið hefur þegar gert.

„Þessi kona er að segja að kröfurnar okkar séu ekki nógu háar. Getum við ekki bara verið sammála um það að fátækt fólk þarf meira,“ sagði Sólveig Anna við í Fréttablaðið.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að Georgina spyrji sig að því hvers vegna Sólveig Anna biður ekki um meiri pening. Svörin sem hún fái séu að þau séu ströng og vilji ekki borga hærri laun.

„Við erum í verkfalli, af hverju getum við ekki beðið um meira? Allir vilja meiri peninga. Það er punkturinn,“ segir hún og er ekki ánægð með samninganefnd Eflingar. „Ég varð fyrir vonbrigðum.“