Lést í októ­ber úr Creutz­feldt-Jakob sjúk­dómi

Í októ­ber síðast­liðnum lést ís­lensk kona á sex­tugs­aldri úr Creutz­feldt-Jakob (CJS) sjúk­dómnum. Frétta­blaðið greinir frá málinu.

Þar segir að á næst­liðnum fimm­tán árum hafa þrír látist á Ís­landi úr hinum afar sjald­gæfa og ó­læknandi tauga­sjúk­dómi Creutz­feldt-Jakob. Smit­leiðir eru ekki þekktar. Creutz­feldt-Jakob leggst aðal­lega á fólk yfir miðjum aldri.

Frétta­blaðið ræðir við Önnu Margréti Hall­dórs­dóttur, yfir­lækni á sótt­varna­sviði Em­bættis land­læknis.

„Við höfum einnig fengið upp­lýsingar frá Land­spítala um tvo aðra ein­stak­linga sem létust úr þessum sjúk­dómi á síðari árum, annar árið 2020 og hinn árið 2007. Þannig er um þrjá ein­stak­linga að ræða á 15 árum hér­lendis sem við höfum upp­lýsingar um,“ segir Anna Margrét.

Frétt Frétta­blaðsins í heild sinni.