Lést í elds­voða í Borgar­firði

Eldur kom upp í í­búðar­húsi í upp­sveitum Borgar­fjarðar síð­degis í gær. Í til­kynningu sem birtist á Face­book-síðu Lög­reglunnar á Vestur­landi nú á tíunda tímum í morgun kemur fram að til­kynnt hafi verið um eldinn um klukkan 17:30.

Þegar slökkvi­lið og lög­regla komu á staðinn var í­búðar­húsið al­elda. „Að­stæður til slökkvi­starfs voru erfiðar en slökkvi­lið náði tökum á eldinum um þremur tímum eftir komu á vett­vang. Húsið er gjör­ó­nýtt.“

Þá kemur fram að slökkvi­starfi hafi lokið um klukkan 23 í gær­kvöldi en að því komu slökkvi­lið frá öllum starfs­stöðvum slökkvi­liðs Borgar­fjarðar auk þess sem að­stoð barst frá slökkvi­liði Akra­ness og Hval­fjarðar­sveitar.

„Ein manneskja var í húsinu þegar eldurinn kom upp og lést hún í brunanum. Ekki er vitað um elds­upp­tök og er rann­sókn á frum­stigi. Lög­reglan á Vestur­landi, á­samt tækni­deild lög­reglunnar á Höfuð­borgar­svæðinu, rann­sakar elds­upp­tök. Frekari upp­lýsingar verða ekki veittar að svo komnu máli,“ segir í skeyti lögreglu.