Lést hér á landi um helgina: Hafði ný­lega fengið bólu­efni Pfizer

Aldraður ein­stak­lingur með undir­liggjandi sjúk­dóm lést um helgina, en hann hafði ný­lega fengið bólu­efni gegn CO­VID-19.

Rúna Hauks­dóttir, for­stjóri Lyfja­stofnunar, sagði í við­tali við Reykja­vík síð­degis í dag að alls hafi tólf til­kynningar um auka­verkanir borist vegna bólu­efnis Pfizer við CO­VID-19, þar af tvær al­var­legar. Hinar tíu snúa til dæmis að höfuð­verk, svima eða ó­gleði eftir bólu­setningu.

Rúna sagði að ó­ljós tengsl væru á milli bólu­setningarinnar og dauðs­fallsins sem varð um helgina, en hitt til­fellið snýr að ein­stak­lingi sem lenti á gjör­gæslu og var einnig með undir­liggjandi sjúk­dóm.

Rúna sagði mikil­vægt að það kæmi fram að í þessari fyrstu um­ferð bólu­setningar gegn CO­VID-19 væri verið að bólu­setja elsta og veikasta hópinn. „Þetta geta verið aldraðir sjúk­lingar með undir­liggjandi sjúk­dóma og lang­vinn veikindi,“ sagði hún og bætti við að mikil­vægt væri að til­kynna allar auka­verkanir til Lyfja­stofnunar.

„Það er mjög mikil­vægt að fá þær inn til þess að safna þeim saman, fyrir öll ný lyf og ekki síst þessi bólu­efni.“