Lést á Landspítalanum vegna Covid-19 – Fyrsta andlátið síðan í maí

Einn sjúklingur með Covid-19 lést á gjörgæsludeild Landspítalans í dag. Um er að ræða fyrsta andlátið hér á landi vegna Covid-19 síðan í maí síðastliðnum. Sjúkdómurinn hefur nú dregið 31 einstakling til dauða.

Frá þessu greinir fréttavefur Vísis.

Í fréttinni kemur fram að um hafi verið að ræða karlmann á áttræðisaldri sem hafði legið inni á gjörgæslu í nokkurn tíma.

Alls greindust 103 smit innanlands í gær og var meirihluti þeirra, eða 63, utan sóttkvíar.