Leya Rún Taha Karin, varaþingmaður Pírata, segir að gráar götur með engum grasblettum, engum blómum og engum trjám geri hana í alvörunni þunglynda.
„Einn daginn flyt ég til Hollands eða eitthvað og verð glöð að eilífu,“ segir hún á Twitter. Hún bætir svo við færsluna og segir:
„Lækjargata er ekki ómissandi bílagata there I said it ég vil loka henni og fá blóm og tré og gras í staðinn.“
Margir virðast taka undir þetta með Lenyu og segir til dæmis einn:
„Ég var einmitt að hugsa þetta þegar ég keyrði Lækjargötuna í dag. Hvar eru öll blómin og hvar er allt fólkið á röltinu?“