Lenya Rún opnar sig upp á gátt: „Ég fann bara fyrir því að ég var að deyja“

Lenya Rún, baráttukona og varaþingmaður Pírata, hefur glímt við átröskun síðastliðin tíu ár. Lenya opnaði sig um þetta í einlægu viðtali í þættinum Okkar á milli sem er á dagskrá RÚV.

Lenya hefur vakið athygli undanfarin misseri en hún er einn yngsti varaþingmaður í sögu Íslands. Þá hefur barátta hennar gegn hvers konar misrétti vakið athygli, en Lenya hefur meðal annars opnað sig um rasisma og persónuárásir sem hún hefur orðið fyrir.

Í umfjöllun RÚV um þáttinn kemur fram að Lenyu finnist mikilvægt að koma sögu sinni á framfæri á eigin forsendum. Kjaftasögur hafi gengið um hana meðan hún dvaldi á Kleppi vegna veikinda sinna. Einnig sé mikilvægt að taka samtalið um geðræna sjúkdóma.

Lenya lýsir því að hún hafi greinst með átröskun árið 2013 og verið föst í því að vera fullkomin.

„Það náttúrlega tekst ekki, það er enginn fullkominn og það er ekki hægt að hafa stjórn á öllu, þannig er bara lífið. Ég var bara dottin í einhverja holu,“ segir hún meðal annars.

Áður en Lenya var lögð inn var líkamlegt ástand hennar orðið slæmt. Líkaminn hafi byrjað að slökkva á sér og lýsir hún því að hún hafi verið mikið hjá læknum vegna allskonar einkenna. Var hún til dæmis með sár í munni, fékk sýkingu í gömul sár og var með hósta og hálsbólgu. „Ég fann bara fyrir því að ég var að deyja. Það var alveg smá högg að átta sig á því.“

Í viðtalinu ræðir hún opinskátt um veikindi sín og dregur ekkert undan.

Lenya hvetur fólk til að leita aðstoðar ef það glímir við veikindi. „Þetta eru algjör forréttindi og alls ekki sjálfsagður hlutur, að vera á lífi. Þess vegna langar mig líka að ítreka mikilvægi þess að leita sér hjálpar þegar fólk er að glíma við einhvers konar geðræn vandamál.“

Hér má hlusta á viðtalið við Lenyu og lesa umfjöllun RÚV um það.