Lenya Rún: „Er þetta ekki bara gerendameðvirkni í sínu tærasta formi?“

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, segir ekki hægt að velja hvaða þolendum staðið er með. Mikið hefur verið rætt í dag um „læk“ sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti við færslu Loga Bergmanns Eiðssonar á Facebook í gærkvöldi.

Áslaug Arna sagði í skriflegu svari til fjölmiðla að á erfiðum tímum reyni hún að sýna þeim sem standa henni nærri samkennd. Það mætti gera með öðrum hætti en hún gerði. Hins vegar felist engin afstaða eða vantrú á frásagnir þolenda.

Þá varð einnig hávær umræða innan Félags kvenna í atvinnulífinu og dró Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður félagsins, læk sitt til baka eftir gagnrýni.

Lenya Rún setti færslu á Twitter sem hefur vakið mikla athygli, þar segir hún:

„Sorry en þú getur ekki cherry pickað hvaða þolendum þú stendur með á grundvelli stjórnmálaskoðana gerandans - þú annaðhvort stendur með þeim og fordæmir þessa hegðun eða ekki. Er þetta ekki bara gerendameðvirkni í sínu tærasta formi?.“

Hún tekur svo fram:

„Mér er slétt sama um alla sem likeuðu þessa færslu nema þeirra sem geta haft beina aðkomu að hvernig málin eru sett fram og stuðlað að kerfislægum breytingum í kjölfarið - fjölmiðlafólk og stjórnmálamenn.“