Lenya Rún bregst við ömurlegum skrifum um sig: „Í síðasta skiptið, þá er ég jafn mikill Íslendingur og allir aðrir“

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, segir að hún sé þreytt á því að lesa ömurleg skrif um sig líkt og gert er víða í netheimum, hún sé alveg jafn mikill Íslendingur og aðrir þó hún hafi verið alin upp í annarri en kristni trú.

Mannlíf greindi frá skrifum Hjördísar B. Ásgeirsdóttur sem skrifaði færslu í Facebook-hópinn Stjórnmálaspjallið þar sem hún segir að „sorglegt að hún eigi svona erfitt með að virða íslenska menningu og trú.“

„Hún (Lenya Rún) líkast til áttar sig ekki á því ef hún fer á þingpallana þá verður hún að lúta að íslenskum kristnum gildum samkvæmt lögum. Það að byrja á því að tala niður um íslenska menningu og trú, kann ekki góðri lukku að stýra. Hún sem „fullorðinn“ einstaklingur ætti að vita betur í dag,“ skrifaði Hjördís.

Lenya Rún bregst við á Twitter:

„Ég er nú kannski bara laganemi og varla fullorðin skv. þessari konu en það er ekkert sem bendir til þess - hvorki í lögum né hefðum - að ég þurfi að lúta kristnum gildum þegar ég stíg á þingpallana. Og bara svona í síðasta skiptið, þá er ég jafn mikill Íslendingur og allir aðrir.“

Lenya Rún deilir svo athugasemdum um hana þar sem henni er lýst sem „pakki“ og talað um hana sem múslima.

„Þið skiljið ekki hvað ég er þreytt á því að lesa svona um mig, væri ekki uppbyggilegra að gagnrýna áherslurnar mínar frekar en þjóðernið mitt og trúna sem ég var alin upp í en stunda ekki í dag?“

Margir taka undir með henni, þar á meðal Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, sem segir: „Oj en ömurleg skrif. Segir auðvitað ekkert um þig og allt um þá sem ritar. Pínu fyndið samt að hún skuli í sömu andrá ýja að því að þú sért ennþá krakki en samt svo margt sem hefur breyst síðan þú varst krakki.“

Einnig Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingmaður, sem segist tengja við hana: