Lenya birtir miður falleg skilaboð sem hún fékk - Rasistinn ekki með staðreyndirnar á hreinu

Lenya Rún Taha Karim, sem skipar þriðja sætið á lista Pírata í Reykjavík norður fyrir komandi kosningar, birti á Twitter-síðu sinni miður falleg skilaboð sem henni bárust nýlega.

Lenya er af kúrdískum uppruna og voru skilaboðin sem hún fékk orðrétt svona: „veit ekki hvað eitthver helv blendingur eins og þu haldir að þu sért að gera að bjóða þig fram á þing en þu átt ekkert erindi þar.“

Lenya sér spaugilegu hliðina á þessu í færslu sinni því hún bendir á að það sé ekki dropi af íslensku blóði í henni. Og einmitt þess vegna telji hún sig eiga fullt erindi á þing. Segir hún síðar í þræðinum að ef þú ætlar þér að vera rasisti sé að minnsta kosti gott að vera með staðreyndirnar á hreinu.

Smári McCarty, fyrrverandi þingmaður Pírata, skrifar athugasemd við færsluna og rifjar upp samtal sem hann átti við ónefnda konu fyrir skemmstu.

„Kona nokkur spurði hvort ég væri ekki á móti því að íslensk fyrirtæki væru seld til "Araba". Vísaði í sölu á einhverju fyrirtæki til Brazilíu. Hún fílaði ekki "framandi lönd". Þegar ég tjáði henni skoðun mína kvaðst hún ekki ætla að kjósa mig... en ég er ekki í framboði! Úff...“

Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, segir að flokkurinn sé sá eini sem býður upp á 100% Kúrda á þing. „Varist eftirlíkingar,“ segir hann.