Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, hefur birt framtíðarsýn sína um hvað mun gerast á Alþingi árið 2065, eða eftir 43 ár. Er líklegt að hún sé sett fram í gríni frekar en alvöruÞ
„Árið er 2065, Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn, þau voru að leggja fram áfengisfrumvarpið í 73. sinn enda hluti af kosningaloforðinu þeirra, allir eru spenntir, þetta tekst í þetta skiptið,“ skrifar hún á Twitter.
Vísar hún í nýtt frumvarp Hildar Sverrisdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að heimila sölu áfengis í netverslunum. Slíkt frumvarp hefur dúkkað upp áður úr röðum Sjálfstæðismanna, þar áður hafa komið fram mörg frumvörp um að leyfa áfengi í verslunum. Aldrei hefur neitt orðið úr því.
Erna Ýr Öldudóttir, blaðamaður, var fljót að bregðast við útspili Lenyu og spurði:
„Verður það af því að Píratar geta ekki stutt frelsismál og aðstoðað við að koma þessu í gegn?“
Lenya var svo fljót að svara:
„Þetta er alltaf fellt innanbyrðis og þú veist það - annars fyndið hvað atkvæði stjórnarandstöðunnar skipta allt í einu miklu máli þegar það kemur að því að koma frumvarpi Sjálfstæðisflokksins í gegn.“
Erna Ýr spurði þá á móti:
„Eru Píratar þá bara á þingi til að klekkja á öðrum þingmönnum og stoppa mál sem kjósendur eru kannski að bíða eftir?“
Fór það svo að Lenya blokkaði Ernu Ýr á Twitter:
Það er svo erfitt að svara kjósendum 🥲 pic.twitter.com/g9Eql46DpJ
— Erna Ýr Öldudóttir (@ErnaYarrr) February 11, 2022
Ég spurði hvort Píratar ætluðu ekki að styðja áfengisfrumvarpið. Mig langaði nú bara að geta keypt vín úti í búð eins og í útlöndum. En þú?
— Erna Ýr Öldudóttir (@ErnaYarrr) February 11, 2022