Lenya ætlar að taka Eddu sér til fyrirmyndar: „Nafngreina allt ruglið“

Píratinn Lenya Rún Taha Karim ætlar að nafngreina hvern einn og einasta sem segir eitthvað viðbjóðslegt og rasískt við sig eða um sig. Lenya greinir frá þessu á Twitter og segir að hún sé með þessu að taka hlaðvarpsstjórnandann Eddu Falak sér til fyrirmyndar.

Edda hefur tekið upp á því að birta myndir og hæðast að þeim að segja hræðilega hluti um sig í opinberlega á samfélagsmiðlum.

„Ætla að taka Eddu til fyrirmyndar og nafngreina hvern og einn einstakling sem segir eitthvað viðbjóðslegt og rasískt við mig og um mig,“ segir Lenya á Twitter.

„Bjartir tímar framundan, konur að neita að taka skít frá öðru fólki vegna aktivisma og vinnu sem þau eru að sinna í þágu samfélagsins“

Hún bætir svo við: „Fyndið hvað aktivistar og baráttufólk fá mesta og ógeðslegasta skítinn á sig.“

Edda Falak sagði svo: „Sumt er bara það ruglað að það er hilarious.“

Lenya svaraði henni: „Um að gera þá að nafngreina allt ruglið“