Lentu ó­­vænt á Ís­landi vegna barns­hafandi konu: „Ég vona að barnið þitt sé öruggt og þér líði vel“

Ó­vænt at­vik kom upp í flugi American Air­lines sem fljúga átti frá He­at­hrow í Bret­landi til Chi­cago í Banda­ríkjunum eftir að hríðir hófust hjá ó­léttri konu. Flug­vélin neyddist til þess að lenda á Ís­landi, en upp­haf­lega stóð ekki til þess.

Einn af far­þegunum um borð í vélinni greinir frá þessu á Twitter í dag og óskar til­vonandi móður góðs gengis.

Flug­vélin stöðvaði í rúma tvo klukku­tíma á Kefla­víkur­flug­velli áður en hún fór af stað á ný.