Lekinn kemur lík­legast frá lög­reglunni: „Við lítum þetta mál mjög al­var­legum augum“

Mynd­band, sem er í mikilli dreifingu og sýnir inn­rás fjölda grímu­klæddra manna í Banka­stræti Club síðast­liðinn fimmtu­dag, er talið koma úr gagna­grunni lög­reglunnar.

Grímur Gríms­son, yfir­maður mið­lægrar deildar lög­reglu á höfuð­borgar­svæðinu, stað­festir að þessar grun­semdir séu til staðar í sam­tali við Frétta­blaðið og segir að málið sé til skoðunar. „Við lítum þetta mál mjög al­var­legum augum, ef þetta er eins og virðist blasa við þá er þetta trúnaðar­brestur,“ segir Grímur.

Þá segir hann að ef þessi skoðun muni benda til þess að mynd­bandið komi úr röðum lög­reglunnar verði það sent til Héraðs­sak­sóknara. Um væri að ræða brot í opin­beru starfi.

Á einum tíma­punkti í mynd­bandinu sést í bak­grunn á tölvu­skjá þess sem tekur upp en þar hafa nokkrir bent á að sjáist í LÖKE-kerfi lög­reglunnar sem og Tekjukerfi ríkisins.

Sjá má forritin til vinstri á myndinni.

Grímur getur ekki tjáð sig um hvort ein­hver sé grunaður í málinu, en segir að grun­semdir hafi vaknað um að mynd­bandinu hefði verið lekið frá lög­reglunni þegar það fór í mikla dreifingu í gær­kvöldi.

Í mynd­bandinu sem um ræðir sést hvernig fjöl­margir grímu­­klæddir ein­staklingar ráðast inn í VIP-her­bergið á Banka­­stræti Club og hlaupa að þremur ein­stak­lingnum.

Greint hefur verið frá því í fjöl­­miðlum að tæp­lega þrjá­tíu manns hafi ráðist á þrjá menn um tví­­tugt og stungið þá marg­­sinnis.

Það er því mikil eftir­vænting eftir ráð­stefnunni 29. nóvember þegar niður­stöðurnar verða kynntar.