Leitin að Friðfinni Frey Kristinssyni hefur ekki borið árangur. Síðast er vitað um ferðir hans síðastliðinn fimmtudag þegar hann fór frá Kugguvogi í Reykjavík.
Lögreglan biðlar til þeirra sem sem eru með öryggismyndavélar í nágrenni við Kugguvog að hafa samband svo mögulega sé hægt að gefa skýrari mynd af ferðum Friðfinns eftir klukkan sjö á fimmtudagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Þá eru íbúar í hverfinu beðnir um að skoða nærumhverfi sitt, líkt og geymslur, stigaganga og garðskúra. Þau sem eru í forsvari fyrir autt húsnæði í hverfinu eru beðin um að skoða slíka staði.
Friðfinnur, sem er 42 ára, er 182 sentimetrar á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg. Hann var klæddur í gráa peysu, gráar joggingbuxur og bláa íþróttaskó síðast þegar sást til hans.