„Ég veit auðvitað ekki hvort hann er lífs eða liðinn en mig langar mikið að heyra hvernig honum reiddi af,“ segir Richard Fowlie, skoskur ríkisborgari, í viðtali í Fréttablaðinu í dag.
Þar er greint frá leit Richards að íslenskum vini sínum, Engel Johannsson, sem hann kynntist á námsárum sínum í Edinborg fyrir tæpum 60 árum. Þeir héldu sambandi með bréfaskriftum eftir að námi lauk en eins og oft vill verða slitnaði upp úr þeim.
Richard sendi bréf til ritstjórnar Fréttablaðsins á dögunum í þeirri von að hafa upp á vini sínum. Hann er 76 ára gamall og búsettur í bænum Banchory sem er nærri borginni Aberdeen.
Nafn íslenska vinarins er Richard ekki í fersku minni eftir öll þessi ár enda eru bréfaskriftir þeirra félaga nú glataðar. „Það er eitthvað í líkingu við Engel Johannsson. Íslensk nöfn eru frekar erfið,“ segir hann en þeir kynntust á árunum 1960 til 1962.
Þeir félagar kynntust á stað sem hét Manor Club og segir Richard að Engel hafi farið út til að læra ensku. „Okkur varð strax vel til vina og sú vinátta hélst þessi ár sem hann bjó í Skotlandi,“ segir Richard.
Hann segist muna eftir því að vinur hans hafi átt heima í Reykjavík og að faðir hans rekið verslun í höfuðborginni. Richard hefur á undanförnum árum reynt ýmislegt til að hafa upp á vini sínum en án árangurs. Hann hafði gefið upp alla von þegar hann fann óvænt mynd af honum í gamalli hirslu.
„Þá ákvað ég að senda bréf á íslenska fjölmiðla svo að sem flestir gætu séð myndina. Ég veit auðvitað ekki hvort hann er lífs eða liðinn en mig langar mikið að heyra hvernig honum reiddi af,“ segir Richard.