Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem átti sér stað á Höfðabakka í Reykjavík, nálægt Árbæjarsafni aðfaranótt sunnudagsins tíunda desember.
Þar var ekið á gangandi vegfaranda sem lét lífið. Lögreglu barst tilkynning um málið klukkan hálf eitt um nóttina.
Þau sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið [email protected].