Lögreglan á Suðurlandi leitar að manni sem er talinn hafa gefið sig á tal við stúlkubarn á Selfossi í gær. Stúlkan var á leið suður eftir göngustíg við Fosstún á Selfossi, nánar tiltekið til móts við hús númer átta um fimmleytið síðdegis í gær.
Stúlkan segir manninn hafa gripið í hana, beðið hana að koma með sér, en hún hafi slitið sig frá honum og haldið heimleiðis. Fram kemur að stúlkan sé algerlega ómeidd en hafi verið brugðið.
Lögreglan greinir frá því að stúlkan hafi, í samtali við lögreglu og fulltrúa barnaverndar, gefið greinargóða lýsingu á manninum. Hann hafi verið í svörtum buxum og dökkum jakka.
Að mati lögreglunnar er mikilvægt að upplýsa um málsatvik og óskar því eftir manninum, eða upplýsingum um hann.
„Hægt er að ná sambandi við lögregluna á Suðurlandi í síma 444-2000 eða með því að hringja í 112. Jafnframt má senda upplýsingar á netfangið [email protected],“ segir í tilkynningunni.