Í Lögbirtingablaðinu má stundum finna óvenjuleg mál, misalvarleg eins og gengur og gerist. Í dag birtist þar ákæra gegn Íslendingi sem er skráður til heimilis í Noregi. Manninum er gefið að sök að hafa, eftir hádegi föstudaginn 5. júlí 2019, ekið bifreið sinni án þess að nota öryggisbelti.
Lögregla stöðvaði akstur mannsins á Kirkjuvegi í Vestmannaeyjum.
„Ákærði er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði ekki þing má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjarstöddum,“ segir í ákærunni sem birt er í Lögbirtingablaðinu.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum krefst þess að maðurinn verði dæmur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.