Einn heppinn vinningshafi fékk fjórfaldan pott óskiptan, eða rúmlega 54,5 milljónir króna, í Lottó 12. júní síðastliðinn. Sá hinn sami hefur enn ekki gefið sig fram við Íslenska getspá. Leit stendur því yfir að þessum næsta milljónamæringi Íslands.
Miðinn var keyptur á N1 Háholti í Mosfellsbæ, samkvæmt tilkynningu frá Íslenskri getspá.
„Því biðlar Íslensk getspá til allra þeirra sem keyptu sér miða hjá N1 Háholti fyrir útdráttinn 12. júní að renna vel yfir miðana og tölurnar í von um að þessi stóri vinningur komist sem fyrst í réttar hendur,“ segir í tilkynningunni.