Leit er hafin að íslenskri stúlku, Telmu Líf Ingadóttur, en ekkert hefur spurst til hennar síðan hún yfirgaf Villajosa-sjúkrahúsið í Alicante í gærmorgun.
Fréttavefur DV greindi fyrst frá málinu í gærkvöldi. Telma sást síðast ganga út af sjúkrahúsinu klukkan hálf sex í gærmorgun og var hún líklega klædd í svartan skokk, svört lág leðurstígvél og bleikan leðurjakka. Hún er 170 cm á hæð, ca 65-70 kg með blá augu og fjólublátt/plómulitað hár rakað á hliðunum.
„Allir á Spáni hafid augun opin fyrir stelpunni okkar, hún hefur engan síma eða skilríki, hún gæti verið í losti!! Deilid sem víðast!! Lögreglan er med mynd og er ad leita,“ segir í færslu sem foreldrar hennar, Guðbjörg Gunnlaugsdóttir og Ingi Karl Sigríðarson, birtu í gær.
Engin uppfærsla hefur birst á Facebook-síðunni í morgun og því útlit fyrir að Telmu sé enn saknað.
Fréttablaðið ræddi við föður hennar í gærkvöldi og sagði hann að utanríkisráðuneytið, lögreglan á svæðinu og vinir Telmu hafi verið látnir vita. Hann kvaðst ekki vita hvers vegna Telma yfirgaf sjúkrahúsið, en hún var nýlega farin að búa ein á Benidorm. Fjölskyldan hefur búið á Spáni í tvö og segir Ingi að Telma tali einhverja spænsku, þýsku og sé reiprennandi í ensku.