Leiksvæðið tekið af börnunum: „Þetta er borgaryfirvöldum til skammar“

Ingólfur Bruun, foreldri barns í Háteigsskóla, vandar borgaryfirvöldum ekki kveðjurnar í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Ingólfur bendir á að hafnar séu fram­kvæmdir við Vatns­holt við Há­teigs­veg. Ekki alls fyrir löngu lögðu börn á svæðinu krossa á leiði útivistarsvæðis sem börn hafa nýtt áratugum saman. Nýsamþykkt deiliskipulag borgarinnar gerir ráð fyrir byggingaframkvæmdum á svæðinu og samkvæmt því verður ekki lengur hægt að leika sér á græna svæðinu eins og áður.

„Við þetta minnkar leik­svæði barna til muna í hverfinu. Þetta er miður. Öll höfum við verið börn og þau okkar sem komin eru yfir miðjan aldur muna vel hvað það var gaman að geta leikið sér á opnum svæðum í ná­grenni skóla og heimilis,“ segir Ingólfur í grein sinni.

Hann segist dást að þraut­seigju barnanna sem stóðu ofan á gamla vatns­tankinum við Há­teigs­veg til að mót­mæla fyrir­huguðum fram­kvæmdum. Hann minnir á að börn hafi sama rétt og fullorðin en rödd þeirra sé allt of oft hunsuð.

„Börn eru nefni­lega oft skynugri og sjá betur lausnir en við sem full­orðin erum. Borgar­yfir­völdum væri hollt að beygja sig oftar niður til jafns við börnin og spyrja þau hvað þeim finnst. Því miður er of seint að stöðva fram­kvæmdir við Vatns­holt en látum það verða okkur víti til varnaðar og hættum frekari land­vinningum í þágu þéttingar byggðar í ná­grenni Sjó­manna­skólans. Okkur vantar fleiri opin svæði, ekki færri.“

Ingólfur bendir einnig á að nú standi yfir framkvæmdir í nágrenni Háteigsskóla.

„Í stað þess að stækka helgunar­svæði skólans, bæði með hlið­sjón af stærra leik­svæði og byggingu fyrir ung­linga­deild skólans, þá tóku borgar­yfir­völd þá vondu á­kvörðun að heimila í­búða­byggingar á um­ræddu svæði. Þetta er borgar- og skipu­lags­yfir­völdum til skammar. Um­ræddar á­kvarðanir bera vott um skamm­sýni og þröng­sýni svo furðu sætir. Hér er ekki verið að hugsa um betra mann­líf og hags­muni barnanna okkar heldur ein­hverja aðra hags­muni. Hverra hags­munir skyldu það vera?“