Á dögunum skrifuðu fyrrverandi starfsmenn og mæður barna í leikskólanum Sælukoti grein þar sem skólinn var meðal annars tengdur við sértrúarsöfnuðinn Ananda Marga, sem var bendlaður við hryðjuverk víða um heim.
Nú hefur Elín Halldórsdóttir, leikskólastjóri Sælukots, stigið fram og tjáð sig í grein á Vísi.
„Ég undirrituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjölmiðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rangfærslur um skólastarf leikskólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf.“ skrifar hún.
„Ég hef síðustu 2 daga þurft að taka símtöl þar sem foreldrar fyrrum leikskólabarna í Sælukoti harma þessa hræðilegu umfjöllun út af því að hún samræmist ekki þeirra reynslu en einnig hef ég þurft að svara áhyggjufullum foreldrum. Að sjálfsögðu er alltaf gott að fá uppbyggilega gagnrýni og ábendingar og það vilja allar skólastofnanir það er aftur á móti annað mál að fá bylgju af uppspuna og ósannindum yfir sig.“ segir Elín, sem segir að margt sem birtist í greininni á dögunum vera alrangt.
„Ég hef þurft að hlusta á það í útvarpinu að enginn faglegur leikskólastjóri starfi við skólann. Að skólinn tengist hryðjuverkasamtökum, að skólavistin jafnist á við fangabúðir svo eitthvað sé nefnt. Hér er vegið að litlum skóla með alþjóðlega sögu og alþjóðlega nemendur og starfsfólk með ótrúlegum hætti. Rekstrarstjóri leikskólans sem er nunna er nú orðin hryðjuverkamaður í íslenskum fjölmiðlum og stóreignakona. Börnin eru orðin að þrælum og starfsfólkið allt er ófaglegt og örugglega með hor í nös.“
Þá segir Elín að ákveðið mál tengt leikskólanum sem varði áreiti hafi farið í eðlilegan farveg, í gegn um lögreglu, barnavernd og eftirlitsaðila frá borginni. Hún segir að málið hafi á endanum verið afgreitt án ákæru.
„Sem Leikskólastjóri Sælukots bið ég alla þá sem upphafa stóryrði eða rita eða tala í fjölmiðlum um leikskólann Sælukot og starfsumhverfi lítilla barna að sýna litlum börnum og þeirra starfsumhverfi tilhlýðilega virðingu og kynna sér málin áður en farið er í skotgrafirnar. Ást og friður.“