Leikmenn enska liðsins í veseni eftir leikinn gegn Íslandi – Buðu stúlkum upp á hótel

Tveir leikmenn enska landsliðsins í knattspyrnu gætu verið í veseni eftir að þeir fengu heimsókn frá tveimur íslenskum stúlkum á hótelið sem þeir dvelja á hér á landi.

Ísland og England áttust við á laugardag og heldur enska liðið af landi brott í dag. 433.is greinir frá því að tveir leikmenn liðsins, Mason Greenwood og Phil Phoden, hafi fengið tvær íslenskar stúlkur í heimsókn til sín en um er að ræða brot á ströngum reglum vegna COVID-19 faraldursins.

Stúlkurnar eru sagðar hafa birt myndir af heimsókn sinni á Snapchat. Í frétt 433.is segir:

„Casual sunday hjá okkur XXXX. Hún var að bóka hótel til að hitta hvern?,“ segir önnur stelpan á myndbandinu og hin svarar. „Mason Greenwood, ég er stressuð. Mjög fokking stressuð.“

Samkvæmt reglum máttu leikmenn aðeins vera á hótelinu og á æfingum en þeim var bannað að hitta utanaðkomandi aðila. Þannig hefur 433.is eftir starfsmanni KSÍ að þeir hafi ekki einu sinni fengið leyfi til að hitta fjölskyldu sína.

Óhætt er að segja að frétt 433.is hafi vakið athygli en bæði The Sun og Daily Mail hafa fjallað um málið í morgun.