Annar þáttur af þremur vegna 70 ára afmælis Þjóðleikhússins er á dagskrá Hringbrautar í kvöld. Þátturinn sem er í umsjón Lindu Blöndal ræðir við fyrrverandi leikhússtjóra, Gísla Alfreðsson og Tinnu Gunnlaugsdóttur sem einnig minnist tíma síns sem leikkonu í húsinu. Einnig er spjallað við leikkonurnar Kristbjörgu Kjeld og Margr´ti Guðmundsdóttur sem hófu störf á fyrstu árum Þjóðleikhússins og áttu farsælan feril til áratuga þar. Þær minnast tímanst þegar þær fyrst stigu á svið í þessu glæsta leikhúsi.
Arnar Jónsson er sá leikari sem hefur leikið flest karlaðalhlutverkin á fjölum Þjóðleikhússins, hann ræðir um þrældóminn sem leikarastarfið var en líka skondnar uppákomur. Arnar viðrar líka skoðun sína á því hvað Þjóðleikhús þarf að gera til að standa undir nafni.
Þátturinn hefst Kl.20 og verður endursýndur síðar um kvöldið og á morgun, 1.maí.