„Tók morgunkaffi með vini. Hann er á leigumarkaði og enn á ný að fara að flytja,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, á Facebook-síðu sinni.
Í færslunni lýsir hann raunum vinar síns á íslenskum leigumarkaði, en óhætt er að segja að staða leigjenda og fólks sem er að reyna að kaupa sér sína fyrstu eign hafi verið í deiglunni að undanförnu enda staðan sjaldan verði jafn erfið.
Í færslu sinni segir Stefán að vinur hans hafi upp á síðkastið leigt herbergi á gistiheimili með sameiginlegum aðgangi að salerni og sturtu. Fyrir þetta greiddi hann 80 þúsund krónur.
„Núna hefur leigusalinn kerfisbundið sagt upp öllum leigjendunum (yfirleitt fá menn viku eða hálfan mánuð til að hypja sig) vegna þess að landið er að fyllast af farandverkamönnum í byggingariðnaði og hann græðir meira á að að leigja hvert herbergi út til tveggja Pólverja eða Georgíumanna fyrir 60 þús. á mann,“ segir Stefán sem endar færsluna á þessum orðum:
„Kaffið varð beiskara á bragðið undir þessari frásögn.“