Leigubílstjórinn Einar skýtur á unga Sjálfstæðismenn: „Mamma og pabbi borguðu senni­­lega elds­neytið þarna um nóttina“

Einar Haf­steinn Árna­son, for­­maður Fylkis bíl­­stjóra­­fé­lags og leigu­bíl­­stjóri, fer nokkuð hörðum orðum um upp­á­tæki Sam­bands ungra Sjálf­stæðis­manna frá því um helgina í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Greint var frá því um helgina þegar SUS-arar buðu al­menningi upp á skutl í og úr mið­bænum í því skyni að vekja at­hygli á bág­bornu á­standi á leigu­bíla­markaðnum hér á landi. Eins og lands­menn vita hefur verið erfitt að fá leigu­bíl í mið­bæ Reykja­víkur um helgar.'

Sjá einnig: Svona varð íslenski leigubílamarkaðurinn eins og hann er í dag

„Við kannski bjóðumst til þess að leysa Sjálf­­stæðis­­menn af á þinginu út af því að það kostar of mikið fyrir okkur að borga þeim laun og þeir af­­greiða ekki nógu mikið. Það væri svipað skilurðu. Ég gæti gengið inn á Al­þingi og leyst fjár­­mála­ráð­herra af, því mér finnst hann ekki gera hlutina rétt. Þetta er svo vit­­laust,“ segir Einar í sam­tali við Frétta­blaðið.

„Það er ekkert mál að gera þetta ef þú þarft ekki að sinna öllum kostnaðinum, eins og hjá skutlurunum, eða SUS. Það er enginn kostnaður þar að baki, þeir eru bara á fólks­bílnum sínum að skutla, með venju­­legar tryggingar en ekki þessar svo­kölluðu leigu­bíla­­tryggingar sem eru upp í 7-800 þúsund kall á ári. Mamma og pabbi borguðu senni­­lega elds­neytið þarna um nóttina, sem er 320 krónur líterinn í dag. Þannig þetta er ekki svona ein­falt.“

Við­tal Frétta­blaðsins við Einar í heild sinni.