Leigu­bíl­stjórar mættu fyrir utan ráð­herra­bú­staðinn og lög­reglan skarst í leikinn

Leigu­bíl­stjórar mættu fyrir utan ráð­herra­bú­staðinn í morgun og þeyttu lúðra í mót­mæla­skyni vegna fyrir­hugaðs frum­varps inn­viða­ráð­herra um breytingar á lögum um leigu­bíla­akstur.

Frétta­blaðið birtir mynd­band af mót­mælunum og greinir frá því að lög­reglan hafi skorist í leikinn. Leigu­bíl­stjórar fengu ekki að fara inn á fund ríki­stjórnarinnar í ráð­herra­bú­staðnum.

„Banda­lag ís­lenskra leigu­bíl­stjóra biður ríkis­stjórnina um að veita starfandi leigu­bíl­stjórum á­heyrn vegna laga­frum­varps um leigu­bif­reiða­akstur,“ las for­maður banda­lagsins upp fyrir utan ráð­herra­bú­staðinn en í mynd­bandi Frétta­blaðsins má heyra leigu­bíl­stjórana flauta ákaft.
Frétt Frétta­blaðsins má lesa hér.