Leigu­bíla­ferðin endaði á að kosta hann 320 þúsund krónur

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt karl­mann í 60 daga ó­skil­orðs­bundið fangelsi og til að greiða rúmar 320 þúsund krónur eftir að leigu­bíla­ferð í októ­ber síðast­liðnum endaði með ó­sköpum.

Í á­kæru kemur fram að maðurinn hafi laugar­daginn 12. októ­ber síðast­liðinn, blekkt leigu­bíl­stjóra til að aka sér frá Lauga­vegi að ó­til­greindum stað í Reykja­vík án þess að greiða fyrir farið. Greiddi hann að­eins hluta far­gjaldsins en í kjöl­farið reif hann á­klæði af fram­sæti leigu­bif­reiðarinnar með þeim af­leiðingum að skemmdir urðu á á­klæðinu.

Gerð var krafa um að maðurinn myndi greiða skaða­bætur, sam­tals rúmar 320 þúsund krónur.

Í niður­stöðu dómsins kemur fram að á­kærði hafi ekki sótt þing­festingu málsins og ekki boðað for­föll. Var málið því dæmt að honum fjar­stöddum. Maðurinn, sem er fæddur árið 1984, á að baki nokkurn saka­feril en frá því hann varð 18 ára hefur hann hlotið 10 refsi­dóma.

Með hlið­sjón af þessu þótti hæfi­leg refsing 60 daga fangelsi en auk þess var honum gert að greiða 321.150 krónur í skaða­bætur sem væntan­lega má rekja til á­klæðisins sem hann reif af.