Leigan hækkaði þegar staðnum var lokað: „Upp­lifum þetta sem hrotta­skap“

„Við upp­lifum þetta sem al­geran hrotta­skap í við­skiptum,“ segir Þór­hallur Viðars­son, einn eig­enda skemmti­staðarins B5 í Banka­stræti, í sam­tali við Morgun­blaðið í dag.

B5 leigir staðinn af fast­eigna­fé­laginu Eik og er Þór­hallur afar ó­hress með tíðar hækkanir á leigu­verði undan­farin misseri, meðal annars ný­lega þegar fast­eigna­fé­lagið vildi ekki endur­skoða áður sam­þykktar hækkanir þegar sam­komu­bann var sett á og staðnum lokað.

Í Morgun­blaðinu kemur fram að leigan hafi hækkað um hálfa milljón króna þann 1. apríl síðast­liðinn. Segir Þór­hallur að ef for­svars­menn staðarins myndu ekki fallast á hækkanirnar yrði að­eins hægt að hafa staðinn opinn til klukkan eitt eftir mið­nætti.

Þór­hallur segir að for­svars­menn staðarins hafi ekki átt annarra kosta völ en að sam­þykkja hækkanirnar. „Spurningin sem við höfum staðið frammi fyrir er hvort við viljum setja fé­lagið í þrot eða borga það sem þeir fara fram á. Fyrir mér er þetta ekkert annað en of­beldi,“ segir hann.

Garðar Hannes Frið­jóns­son, for­stjóri Eikar, segir við Morgun­blaðið að brugðist hafi verið við vand­ræðum leigu­taka vegna CO­VID-19 far­aldursins og þeim sem þurftu veitt að­stoð.