Legsteinasafni Páls bjargað á síðustu stundu

Svo virðist vera sem lausn sé komin í deilumálið á Húsafelli vegna legsteinasafns listamannsins Páls Guðmundssonar.

Fréttavefur DV greinir frá því að deiluaðilar séu að undirrita samkomulag, en það felur í sér að hægt verður að hætta niðurrifi á steinasafninu. Undirbúningur að niðurrifi hófst síðastliðinn föstudag og átti sjálft niðurrif hússins með vinnuvélum að hefjast í dag. Deiluaðilar hafa fundað síðan snemma í morgun og virðist samkomulag nú vera í höfn.

Deiluaðilar hafa freistað þess að ná sáttum og sátu þeir á fundi í dag sem virðist hafa skilað fyrrgreindum árangri. Í frétt DV kemur fram að kröfur Sæmundar Ásgeirssonar, nágranna Páls, um skiptingu bílastæða hafi ekki breyst en vinna við aðalskipulag og deiliskipulag breytist. Þá mun samkomulagið fela í sér að dagsektir sem fallið hafa á Pál, eftir að héraðsdómur kvað upp úrskurð sinn um að rífa skyldi húsið, myndu falla niður.

Hér má lesa frétt DV.