Leggur til að fátækustu Íslendingarnir fái restina af Íslandsbanka gefins

Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt til að fátækasta fólk landsins fái 42 prósenta hlut í Íslandsbanka að gjöf. Þetta kom fram í máli Jóhanns Friðriks á Alþingi í morgun.

Jóhann vísaði í ræðu sinni til þess að þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, hefðu í gær rætt á Alþingi um að nú væri færi á að gefa fólkinu í landinu restinni af Íslandsbanka – taka upp gamla tékkheftið og senda okkur öllum ávísun, skipta þannig 42% hlut í bankanum upp á milli landsmanna.

„Þetta er sannarlega áhugaverð hugmynd sem reyndar er alls ekki ný af nálinni og hefur verið framkvæmd áður við mismikla hrifningu. Þau orð fjármálaráðherra að þessi hugmynd hefur verið rædd af hans hálfu við samstarfsflokkanna kemur mér verulega á óvart. Ekki kannast ég við það að þessi hugmynd hafi rekið á fjörur okkar í Framsókn en eins og okkur einum er lagið útilokum við aldrei áhugaverðar hugmyndir hvaðan sem þær kunna að koma. En, virðulegi forseti, ég vil fá að leiðrétta hér algengan misskilning. Fólkið í landinu á nú þegar 42% hlut í bankanum,“ sagði Jóhann sem stakk upp á annarri hugmynd:

„Ég tel að nær væri að 42% færu til lægstu tekjutíundarinnar í landinu, fólksins sem vill kaupa sér húsnæði og á erfitt með það, fólksins sem á erfitt með að ná endum saman, fólksins sem er ekki fagfjárfestar. Sé þessi leið ekki fær vil ég að sjálfsögðu halda plani, selja hlutinn hæstbjóðanda, nýta fjármunina í að fjölga heilbrigðisstarfsfólki, fjölga heilsugæslum og fjárfesta í heilsu þjóðarinnar því arðurinn af þeirri fjárfestingu er ómetanlegur.“