Leggur til að fæðingar­dagur Harðar verði opin­ber frí­dagur

„Ef við Ís­lendingar værum ekki svona krypplaðir í sálinni og beygðir undir valdið þá væri 4. septem­ber opin­ber frí­dagur Herði til heiðurs,“ segir Gunnar Smári Egils­son, stofnandi Sósíal­ista­flokksins, á Face­book-síðu sinni.

Hörður Torfa­son, tón­listar­maður, leikari og braut­ryðjandi á mörgum sviðum, fagnar 75 ára af­mæli sínu í dag. Ljóst er að Hörður er í miklum metum hjá Gunnari Smára eins og svo mörgum öðrum Ís­lendingum.

„Hann kann allt og getur; sungið, samið, teiknað, leikið, spilað og galdrað fram alls konar, ekki síst and­stöðu. Hörður er Rosa Park okkar Ís­lendinga, braut blað með því að koma út úr skápnum sem hommi 1975, fara þangað sem mátti ekki, krafðist virðingar fyrir það sem hann var. Rosa var hluti af stórri hreyfingu en Hörður öll hreyfingin til að byrja með, alla vega sú sem var sýni­leg. Og hann var því ekki varinn af neinum, stóð einn gagn­vart ógnar­afli haturs og and­mann­úðar.“

Gunnar Smári bendir á að Hörður hafi ratað til baka, unnið sér inn mál­frelsi og til­veru­rétt í sam­fé­laginu.

„Tók þátt í frelsis­bar­áttu sam­kyn­hneigðra og lék síðan lykil­hlut­verk í bús­á­halda­byltingunni, byggði upp vett­vang fyrir and­stöðuna og gjallar­horn fyrir fólk með mikil­vægar skoðanir og sýn. Þið getið rennt yfir lista ræðu­fólks á fundum Harðar og þar má sjá vaxtar­brodda flest þess sem síðar hefur verið gert í réttinda­bar­áttu al­mennings; endur­reisn verka­lýðs­hreyfingarinnar, endur­nýjun stjórn­málanna, stjórn­mála götunnar, stjórnar­skrár­kröfunnar og margt fleira. Þetta er ekki allt verk Harðar, en það sem hann skapaði í bús­á­halda­byltingunni var vett­vangur og far­vegur sem bar­áttu­fólk gat notað til góðs. Til að breyta þarf hvort tveggja; fólk og vett­vang. Og þótt fram­lag margra þeirra sem stigu fram hafi verið mikil­vægt var hið hóg­væra til­legg Harðar mikil­vægast. Fyrir það má taka ofan fyrir honum alla daga.“

Gunnar Smári segir að með réttu ætti 4. Septem­ber að vera opin­ber frí­dagur Herði til heiðurs.

„Grunn­skóla­börn hefðu eytt vikunni í að kynnast starfi hans og bar­áttu­málum og hann fengi á eftir heiðurs­nafn­bót við Há­skóla Ís­lands. En við erum ekki komin þangað. Við erum á leiðinni, en förum hægt. Það sem við þokumst er fólki eins og Herði að þakka.“

Mynd/Stefán Karlsson