Leggur til að Breiðhyltingar kljúfi sig úr Reykjavík

Íbúar í Breiðholti virðast ekki vera parsáttir við mögulegan meirihluta Framsóknarflokksins, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar ef marka má færslu íbúa nokkurs í Facebook hópnum Íbúasamtökin Betra Breiðholt.

Eins og fram hefur komið tilkynntu Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar og oddvitar Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar að þeir hyggist fara í formlegar meirihlutaviðræður.

Guðbjörg Hrafnhetta Ragnarsdóttir, íbúi, virðist alls ekki sátt við þá lendingu ef marka má færsluna hennar.

Þar skrifar Guðbjörg:

„Jæja þá er það sem ég óttaðist að verða að veruleika, en mér datt i hug hvort við í Breiðholti já 111 og 109 (ef þau vilja vera með) að gera eins og Kjalnesingar að skrá okkur úr Reykjavik. Dagur er búin að vera borgarstjóri i 100 ár og hefur aldrei gert nokkuð fyrir Breiðholtið. Þessi þvingunar aðferð þeirra og kúgun er of mikið og við gætum alveg hugsað um okkur sjálf. Áfram Breiðholt ❤️“

Töluverður fjöldi tekur undir með Guðbjörgu. Um 70 manns bregðast við færslunni.

„Ég er til, spurning með að fá bara að sameinast Kópavogi,“ skrifar einn.

Þó eru ekki allir sammála. Jón Ragnarsson nokkur skrifar:

„Ég bjó í Breiðholti í 43 ár og sat í stjórn ÍBB í smá tíma, og komst að því að það er nákvæmlega sama hvaða flokkur var við völd ? Sjálfstæðisflokkurinn ásamt samstarfsflokkum í ríkisstjórn sá um að það þótti meira mál að einkavinur, sem átti hús í Kópavogi fengi leigutekjur , en að lögreglustöð væri í fjölmennasta hverfi Reykjavíkur ? Það er eins og margt fólk í Reykjavík sjái ekki samhengið milli ríkisstjórnar og borgarmálefna ?“

Andri Már Jörundsson nokkur skrifar:

„Guðbjörg þetta er alls ekki satt. Breiðhotlið hefur aldrei fengið eins mikla athygli og síðustu 10 ár. Það er búið að gera helling fyrir okkar sameiginlegu rými. Götur malbikaðar sem hafa aldrei fengið endurnýjun, Göngustígar endurnýjaðir, lýsing bætt, hverfið skreitt með ýmisskonar list, skólalóðir endurnýjaðar, hverfisráð og staf meðal íbúa aukið verulega, endurbætur í breiðholtslaug, íþróttafélög fengið stuðning til að framkvæma, mér finnst miklu snirtilegra í breiðholti en fyrir 10 árum.“