Lausa­ganga katta bönnuð að nætur­lagi í Fjalla­byggð – „Það er sjálf­sagt allur gangur á því hvort þeir hlýði því að koma heim á réttum tíma“

Bæjar­stjórn Fjalla­byggðar mun á næstunni sam­þykkja lausa­göngu katta að kvöld- og nætur­lagi á meðan varp­tíma fugla stendur yfir. Arnar Þór Sverris­son, for­maður skipu­lags- og um­hverfis­nefndar Fjalla­byggðar, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að það verði á á­byrgð katta­eig­enda í Fjalla­byggð að fram­fylgja banninu.

„Það er sjálf­sagt allir gangur á því hvort þeir hlýði því að koma heim á réttum tíma, en það er þá bara eitt­hvað sem eig­endur verða að hafa í huga,“ segir Arnar.

Lík­legast verða engin viður­lög við því að ketti sé leyft að ganga lausum að nætur­lagi. Arnar heldur þó að það sé nægur hvati hjá öllum til þess að halda katta­haldi sínu í sátt og sam­lyndi við ná­granna og aðra bæjar­búa.

„Þetta út­göngu­bann endur­speglar vilja sam­fé­lagsins til að vernda unga og fugla á varp­tíma. Það er á að sjálf­sögðu sá hvati sem katta­eig­endur eiga að hafa til að haga út­göngu kattanna þannig að hún sé í sam­ræmi við vilja bæjarins,“ segir Arnar.

Lausa­ganga katta hefur verið í um­ræðunni upp á síð­kastið eftir að til­kynnt var um fyrir­hugað bann við lausa­göngu katta á Akur­eyri í fyrra. Því banni var síðan breytt í bann á lausa­göngu um nætur.

Arnar segir út­göngu­bann katta um nætur eiga að duga til. „Á daginn er lík­legra að fólk skerist í leikinn ef það sér hvað gerist.